Fundur um tækifæri í erlendu styrkjaumhverfi
Íslensk fyrirtæki geta sótt um erlenda styrki til vöruþróunar og undirbúnings alþjóðlegrar markaðssetningar að uppfylltum skilyrðum.


Samtök iðnaðarins bjóða félagsmönnum á rafrænan kynningarfund fimmtudaginn 21. janúar kl. 12.00-13.00 með fulltrúum Evris um tækifæri í erlendu styrkjaumhverfi á sviði nýsköpunar. Íslensk fyrirtæki geta sótt um erlenda styrki til vöruþróunar og undirbúnings alþjóðlegrar markaðssetningar að uppfylltum skilyrðum. Á þetta við um fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum.
Evris ehf. er íslenskt ráðgjafafyrirtæki sem aðstoðað hefur fjölmörg íslensk fyrirtæki við að sækja erlent fjármagn með góðum árangri.
Á fundinum munu Anna Margrét Guðjónsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Evris, og Sverrir Geirdal, sérfræðingur hjá Evris, fara yfir helstu erlendu fjármögnunarkosti sem í boði eru með aðstoð Evris og Inspiralia.
Hér er hægt að skrá sig. Þeir sem skrá sig fá sendan hlekk fyrir fundinn.
