Geggjuð súkkulaðikaka – Engar mjólkurvörur og enginn hvítur sykur
Ég bara fæ ekki nóg af þessari köku!


Ég bara verð að segja heiminum frá þessari geggjuðu súkkulaðiköku sem inniheldur engan hvítan sykur, ekkert hvítt hveiti og engar mjólkurvörur. Hún er gjörsamlega trufluð!
Ég hef prófað að gera þessa í 4-6 möffinsform en líka prófað að tvöfalda uppskriftina og búa til eina, stóra köku. Ég mæli með því að gera frekar nokkrar litlar – einhvern veginn finnst mér þessi kaka njóta sín betur þannig.
Ég bara trúði því ekki að eitthvað sykur- og smjörlaust gæti bragðast svona vel. Ég bara fæ ekki nóg af þessari köku!
Algjörlega trufluð Paleo-súkkulaðikaka
Botn:
3/4 bolli möndlumjöl
2 tsk kakó
3 msk bráðin kókosolía
1 msk agave síróp
1/4 tsk sjávarsalt
Fylling:
3 msk kókosolía
3 msk kókosmjólk
3 msk agave síróp
6 msk kakó
1/2 tsk vanilludropar
Aðferð:
Byrjum á botninum. Blandið öllum hráefnum saman og deilið á milli 4-6 möffinsforma. Setjið inn í ísskáp á meðan fyllingin er búin til. Svo er það fyllingin. Setjið olíu, mjólk, síróp og kakó í pott og bræðið saman yfir meðalhita. Bætið vanilludropunum út í þegar blandan er silkimjúk og falleg og blandið vel saman. Deilið fyllingunni í möffinsformin og setjið inn í ísskáp. Mér finnst þessi langbest þegar hún er búin að vera inni í ísskáp í um 4 klukkustundir.