Vígalegar White Russian-bollakökur
Sannkallað partí í munninum!


Ég hef lengi, lengi, lengi verið mikill aðdáandi White Russian, sérstaklega út af myndinni The Big Lebowski sem ég dýrka út af lífinu.
Ég á svo ótalmargar góðar minningar sem tengdar eru þessum kokteil að ég bara varð að breyta honum í bollakökur. Útkoman er algjörlega tryllt. Uppskrifitn er einföld en bragðið er ólýsanlega gott. Þið bara verðið að prófa að baka þetta sjálf!
White Russian-bollakökur
Múffur:
1 egg
120 ml rjómi
50 ml Bailey’s
100 g sykur
1/2 tsk vanilludropar
120 g hveiti
1 tsk lyftiduft
smá salt
Krem:
135 g mjúkt smjör
270 g flórsykur
2 msk Bailey’s
1/2 msk vodka
Fylling:
50 g dökkt súkkulaði
50 ml rjómi
2 tsk vodka
Aðferð:
Byrjum á múffum. Hitið ofninn í 180°C og takið til 8-10 möffinsform. Stífþeytið rjómann og blandið vanilludropum og Bailey’s saman við. Þeytið egg í lítilli skál og bætið því saman við rjómablönduna. Blandið sykrinum varlega saman við og hrærið síðan þurrefnum saman við. Deilið á milli möffinsforma og bakið í 18-20 mínútur. Leyfið kökunum að kólna og skerið síðan litlar holur í miðjuna fyrir fyllinguna. Passið að holurnar nái ekki alveg í gegnum kökurnar.
Svo er það fylling. Setjið súkkulaði og rjóma í skál og hitið í örbylgjuofni í 30 sekúndur. Hrærið í blöndunni og endurtakið þar til súkkulaðið er bráðnað. Blandið vodka vel saman við og deilið fyllingunni í holurnar í múffunum.
Loks er það kremið. Þeytið smjörið í 4-5 mínútur og blandið síðan restinni af hráefnunum saman við. Skreytið kökurnar með kreminu og drissið jafnvel smá rifnu súkkulaði yfir herlegheitin.