Notkunarskilmálar

Samþykki þessara notkunarskilmála er forsenda notkunar á frettanetid.is vefnum. Ef þú samþykkir þá ekki skaltu hætta notkun hans nú þegar.

Óheimilt er að hlaða niður efni vefsins öðruvísi en í vafra til skoðunar eins og vefurinn kemur fyrir. Öll vinnsla á efni vefsins er óheimil. Heimilt er að vísa í síður vefsins á öðrum vefsíðum. Ljósmyndir eða myndbrot á vefnum eru varðar höfundarrétti.

Við notkun á vefnum er hugsanlega spurt um persónulegar upplýsingar. Þessar upplýsingar eru geymdar til að koma þeim áleiðis til viðtakanda og mögulega á meðan á úrvinnslu viðtakanda stendur. Notendur sem vilja ekki að við geymum upplýsingar um þá skulu ekki gefa upp slíkar upplýsingar. Vefurinn notar fótspor (cookies) í margvíslegum tilgangi. Persónulegar upplýsingar eru ekki vistaðar í fótsporum. Nánar er kveðið á um þetta í yfirlýsingu okkar um persónuvernd hér að neðan. Skilmálar þessir geta breyst án fyrirvara en gildandi útgáfa þeirra er ávallt aðgengileg á þessari síðu.

Yfirlýsing um persónuvernd

Vakin er athygli á því að þegar farið er inn á vefsíðu okkar vistast fótspor (e. cookies) í tölvu notandans. Þessi fótspor eru litlar textaskrár sem notaðar eru til þess að bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og til að greina heimsóknir á vefsíðuna. Aðrar vefsíður eiga ekki að geta lesið upplýsingarnar sem eru geymdar í fótsporinu.

Með því að samþykkja þessa skilmála um notkun á fótsporum er okkur m.a. veitt heimild til þess að safna og greina upplýsingar eins og t.d.:

Fjöldi gesta og fjöldi innlita frá gestum
Lengd innlita gesta
Hvaða síður innan vefsins eru skoðaðar og hversu oft
Tegund skráa sem sóttar eru af vefnum
Hvaða stýrikerfi og vafrar eru notuð til að skoða vefinn
Hvaða leitarorð af leitarvélum vísa á vefinn
Hvaða vefsvæði vísaði notanda á vefinn
Hvenær dagsins vefurinn er skoðaður

Þessar upplýsingar eru notaðar til þess afla vitneskju um notkun á vefnum og hvaða efni notendur hafa áhuga á að skoða. Þannig getum við aðlagað vefinn betur að þörfum þeirra.

Hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum vöfrum þannig að þeir taki ekki á móti fótsporum. Einnig á að vera hægt að eyða þeim. Nánari upplýsingar um hvernig það er gert má finna á heimasíðum útgefenda flestra vafra.

Markhópagreining

Við notum tæknilausnir Google til að greina notendahópinn okkar í þeim tilgangi að sinna honum betur. Með því að stilla til Google Ads Settings á vef Google getur þú ákveðið að taka ekki þátt í slíkum greiningum.
Við notum gögn sem safnað er nafnlaust með Google Analytics til þess að bæta þjónustuna okkar.

Við leitumst aldrei við að greina hegðun notenda niður á einstaklinga heldur nýtum þessar upplýsingar aðeins í nafnlausum og almennum tilgangi. Þannig getum við bætt þjónustuna okkar með tímanum.