Ég elska svart kaffi. Á erfitt með að byrja morguninn án þess. Sem er skrýtið því ég byrjaði ekki að drekka kaffi fyrr en fyrir þremur árum.

Hér er ég að vinna með mjög dauft kaffibragð sem gerir þessar pönnukökur alveg dúnmjúkar.

Og ef maður sleppir kaffinu og skiptir því út fyrir mjólk þá eru þetta bara mjög hefðbundnar, amerískar pönnukökur. Njótið!

Dúnmjúkar kaffipönnukökur

1 bolli hveiti
1 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
1/4 tsk salt
1/2 bolli sýrður rjómi
1/2 bolli sterkt kaffi
1 egg
2 msk brætt smjör

Aðferð:

Hrærið hveiti, lyftidufti, matarsóda og salti vel saman í skál. Blandið síðan sýrða rjómanum, sterku kaffinu, egginu og smjörinu vel saman við. Ef ykkur finnst blandan of þykk er lítið mál að bæta við smá meira kaffi eða mjólk. Hitið pönnu á háum hita og bræðið smjör á henni. Skiptið niður í meðalhita og steikið hverja pönnuköku í um 2-3 mínútur á hvorri hlið. Berið fram volgar með smjöri og sírópi. Og auðvitað kaffibolla!