Ég ákvað að gera einhverjar tilraunir með nýjasta uppáhaldið mitt: pipardöðlur.

Síðan fæddist þessi elska. Skyrterta með pipardöðlubotni. Þarf ég að segja eitthvað meira? Þetta er hreinlega eitt af mínum bestu verkum allra tíma!

Þegar ég bjó til þessa fyrst notaði ég lakkrísskyr, en það virðist vera farið af markaðinum. Þannig að það er í raun hægt að nota hvaða skyr sem er.

Njótið vel og lengi!

Skyrterta með döðlugottsbotni

Hráefni – Botn:

200 g döðlur
120 g smjör
4 msk. púðursykur
1-1/2 bolli Rice Krispies

Aðferð:

Takið til form sem er sirka 18-20 sentímetra stórt. Ég ákvað að gera mína köku kassalaga en auðvitað er það bara smekksatriði. Og athugið að það er lítið mál að tvöfalda þessa uppskrift því þessi kaka klárast á núll einni. Setjið döðlur, smjör og púðursykur í pott og bræðið saman yfir meðalhita. Látið blönduna sjóða og malla þar til döðlurnar hafa nánast leysts upp og minna á karamellur, í sirka 3-5 mínútur. Gott er að þrýsta á döðlurnar með viðarsleif á meðan þetta mallar. Þetta er í raun líkt og hið hefðbundna döðlugott sem allir elska. Takið pottinn af hellunni og blandið Rice Krispies saman við eftir smekk. Þrýstið blöndunni í botninn á forminu og kælið alveg inni í ísskáp.

Hráefni – Skyrfylling:

2 dósir lakkrísskyr (400 g)
1 1/2-2 dl rjómi
1 tsk. vanilludropar
2 msk. flórsykur

Aðferð:

Þeytið rjómann. Hrærið hin hráefnin vel saman og blandið síðan rjómanum varlega saman við. Skellið blöndunni ofan á botninn og aftur inn í ísskáp í 2-3 tíma. Svo er náttúrulega tryllt að strá smá pipardufti yfir kökuna rétt áður en hún er borin fram!