Við höfum líklegast öll látið franskar ofan í okkur á einhverjum tímapunkti ævinnar. Við tökum þessum mat sem sjálfsögðum hlut en hann á mjög áhugaverða sögu. Hér eru átta hlutir sem þú vissir hugsanlega ekki um franskar kartöflur.

Franskar franskar?

Franskar kartöflur er afar einfaldur en ljúffengur matur. Saga þeirra er hins vegar flókin. Frakkar, Spánverjar og Belgar allir því fram að þeir hafi fundið upp frönskuna, en úr því hefur ekki enn verið skorið. Belgar hafa barist mjög fyrir því að fá franskarnar viðurkenndar sem belgískar. Þeir halda því fram að nafnið sé komið til út af nálægðinni við Frakkland á meðan Frakkar segja að franskar hafi fyrst verið seldar árið 1789 á götuhorni í París. Svo eru það Spánverjarnir, en þeirra helstu rök eru sú að þeir voru fyrstir til að flytja kartöflur yfir Atlantshafið. Mikil ráðgáta, svo vægt sé til orða tekið.

Forsetafranskar

Bandaríkjamenn geta þakkað fyrrverandi forseta sínum, Thomas Jefferson, fyrir franskarnar góðu, en forsetinn féll fyrir réttinum þegar hann bjó og starfaði í Frakklandi. Þrællinn hans, James Hemings, hélt áfram að búa til franskar fyrir forsetann þegar þeir sneru aftur til Bandaríkjanna og kynnti forsetinn Bandaríkjamenn fyrir frönskum kartöflum.

Trufluð tölfræði

Skyndibitastaðurinn McDonald’s selur fleiri franskar en nokkur annar veitingastaður í Bandaríkjunum, en um sjö prósent af öllum kartöflum sem vaxa vestan hafs enda sem franskar á McDonald’s.

Meðalhófið

Meðal Bandaríkjamaður borðar 13,6 kíló af frönskum á ári hverju, samkvæmt útreikningum National Geographic.

Sögulegt

Belgar berjast það hart fyrir frönskunum að þeir hafa búið til safn um þær í bænum Bruges. Safnið heitir Frietmuseum og geta gestir lært um sögu kartöflunnar og smakkað franskar, svo fátt eitt sé nefnt.

Frelsisfranskarnar

Þegar að Frakkar lögðust gegn áætlun Bandaríkjamanna að ráðast inn í Írak árið 2003 var nafni á frönskum í mötuneyti bandaríska þingsins breytt í frelsisfranskar. Þannig var „french“ (eða franskar) tekið úr nafninu og vonuðu þingmenn að nafnið frelsisfranskar (e. Freedom fries) myndi haldast. Það gerði það hins vegar ekki og voru gömlu góðu „french fries“ settar aftur á matseðilinn árið 2006.

Ekki alslæmar

Vissulega eru djúpsteiktar franskar kartöflur ekki það besta sem þú lætur ofan í þig, en kartöflur eru hins vegar mjög næringarríkt grænmeti. Þær innihalda ýmis næringarefni, svo sem B6 vítamín, C-vítamín, magnesíum og járn.

Þykkt er best

Þó ótrúlegt megi virðast þá er minni fita í þykkari frönskum. Það er af því að fita helst í stökkum köntunum og mjóar franskar eru nánar bara stökkar. Þykkari franskar eru hins vegar mjúkar að innan og þar er sterkju að finna, ekki svo mikla fitu.