Margt breytist þann 13. janúar næstkomandi er takmarkanir á landsvísu verða rýmkaðar. Þá tekur ný reglugerð heilbrigðisráðherra Svandísar Svavarsdóttur gildi og er í gildi til 17. febrúar næstkomandi.

Meðal þess sem breytist er að fjöldatakmarkanir verða tuttugu manns, en ekki tíu eins og er í dag. Þá geta líkamsræktarstöðvar opnað aftur, en einungis með afar ströngum skilyrðum og má einungis halda úti lokuðum hópatímum með að hámarki tuttugu manns.

Íþróttastarf barna og fullorðinna verður heimilað samkvæmt reglugerðinni og fjöldamörk í sviðslistum verða ukin þannig að 50 manns mega vera á sviði og í sal 100 fullorðnir og 100 börn. Sama gildir um aðra menningarviðburði.

Þessar tilslakanir leggur sóttvarnarlæknir Þórólfur Guðnason til í minnisblaði þar sem hann telur að vel hafi gengið að sporna gegn útbreiðslu COVID-19 hér á landi. Tillögur hans eru settar fram með fyrirvara um að þróun faraldursins snúist á verri veg hér á landi og því gætu takmarkanir aftur verið hertar fyrir 17. febrúar ef smitum fjölgar. Hér fyrir neðan má sjá helstu breytingar í nýju reglugerðinni.

Helstu breytingar eru þessar:

Almennar fjöldatakmarkanir verða 20 manns.

Verslanir: Gerð er sú breyting að í stað núgildandi reglu sem heimilar 5 viðskiptavini á hverja 10m² er gert ráð fyrir einum viðskiptavini á hverja 4m² en þó ekki fleiri en 100 viðskiptavinum í rými að hámarki.

Heilsu- og líkamsræktarstöðvar: Starfsemi verður heimil með ströngum skilyrðum. Fjöldi gesta má að hámarki vera helmingur þess sem kveðið er á um í starfsleyfi, eða helmingur þess sem búningsaðstaða gerir ráð fyrir ef gestafjölda er ekki getið í starfsleyfi. Einungis er leyfilegt að halda skipulagða hóptíma þar sem hámarksfjöldi í hverjum hópi eru 20 manns og gestir í hvern tíma skráðir. Búningsklefar skulu vera lokaðir. Börn fædd 2005 og síðar eru ekki talin með í gestafjölda. Sóttvarnalæknir mun setja fram ýtarlegar leiðbeiningar um sóttvarnir á heilsu- og líkamsræktarstöðvum.

Íþróttaæfingar: Íþróttaæfingar barna og fullorðinna verða heimilar með og án snertingar innan- og utandyra. Ekki mega vera fleiri en 50 manns í rými.

Íþróttakeppnir: Íþróttakeppnir barna og fullorðinna verða heimilar en án áhorfenda.

Skíðasvæði: Skíðasvæðum verður heimilt að hafa opið með takmörkunum samkvæmt reglu 4 í útgefnum reglum skíðasvæðanna í landinu. Í skíðalyftum skal tryggt að þeir sem eru einir á ferð þurfi ekki að deila lyftustól með öðrum, halda skal tveggja metra nálægðarmörk og sömu reglur gilda um grímunotkun og annars staðar.

Sviðslistir, bíósýningar og aðrir menningarviðburðir: Á sviði mega vera allt að 50 manns á æfingum og sýningum. Andlitsgrímur skulu notaðar eins og kostur er og tveggja metra nálægðartakmörkun virt eftir föngum. Sitjandi gestir í sal mega vera allt að 100 fullorðnir og 100 börn fædd 2005 og síðar. Gestir skulu sitja í sætum sem skráð eru á nafn og fullorðnir eiga að bera grímu.