Það er hægt að nota ýmis hráefni til að koma í staðinn fyrir þau hráefni sem eiga að vera í uppskriftum þannig að þá hefur maður engar afsakanir fyrir að henda sér ekki inn í eldhús og byrja að baka.

Ekki hætta við ef þú átt ekki eitthvað til heldur kíktu á þennan lista minn.

Ég á ekki til LYFTIDUFT

Blandaðu saman 1/4 teskeið af matarsóda og 1/2 teskeið af cream of tartar fyrir hverja teskeið af lyftiduft.

Ég á ekki PÚÐURSYKUR

Notaðu 1 bolla af hvítum sykri EÐA 1 1/4 bolla af flórsykri fyrir 1 bolla af púðursykri.

Ég á ekki EGG

Notaðu 3 matskeiðar af majónes EÐA hálfan, maukaðan banana blandaðan við 1/2 teskeið af lyftidufti EÐA 2 matskeiðar vatn + 1 matskeið olía + 2 tsk lyftiduft fyrir eitt egg.

Ég á ekki SÍTRÓNUSAFA

Notaðu 1/2 teskeið af ediki EÐA eina teskeið af hvítvíni fyrir eina teskeið af sítrónusafa.

Ég á ekki SÝRÐAN RJÓMA

Notaðu 1 bolla af grískri jógúrt EÐA 3/4 bolla af súrmjólk blandaða saman við 75 grömm af smjöri fyrir 1 bolla af sýrðum rjóma.

Ég á ekki SYKUR

Notaðu 1 bolla af púðursykri EÐA 1 1/4 bolla af flórsykri EÐA 3/4 bolla af hunangi EÐA 3/4 bolla af sírópi fyrir 1 bolla af sykri.

Ég á ekki SÚRMJÓLK

Blandaðu 1 bolla af léttmjólk saman við 1 matskeiða af sítrónusafa eða ediki fyrir 1 bolla af súrmjólk.

Ég á ekki HUNANG

Blandaðu 3/4 bolla hlynssírópi saman við 1/2 bolla af hvítum sykri fyrir 1 bolla af hunangi.

Ég á ekki SMJÖR

Notaðu 7/8 bolla af olíu fyrir 225 grömm af smjöri.

Ég á ekki NÝMJÓLK

Blandaðu 1 bolla af vatni saman við 1 1/2 teskeið af smjöri fyrir 1 bolla af nýmjólk.

Ég á ekki RJÓMA

Bræddu 75 g af ósöltuðu smjöri og blandaðu saman við 3/4 bolla mjólk fyrir 1 bolla af rjóma. Þetta kemur þó ekki í staðinn fyrir þeyttan rjóma.