Mikið mæðir á heilbrigðisstarfsfólki á tímum heimsfaraldurs kórónuveiru, en nú liggja 24 á sjúkrahúsi smitaðir af COVID-19. Síðustu daga hefur mikill fjöldi fólks smitast í faraldrinum og búist er við því að fleiri leggist inn á spítala á næstu dögum.

Landspítalinn birtir magnaðar myndir á Facebook-síðu sinni þar sem almenningur getur fengið innsýn í lífið á gjörgæsludeild spítalans.

„Gjörgæsludeildir Landspítala eru á tveimur stöðum, annars vegar í Fossvogi og hins vegar við Hringbraut. Þær sinna báðar hefðbundinni gjörgæslumeðferð og vöknun eftir aðgerðir, rannsóknir, svæfingar og deyfingar. Nokkur sérhæfing er milli þeira í samræmi við skiptingu sérgreina. COVID-sjúklingum er í augnablikinu einvörðungu sinnt í Fossvogi,“ stendur í færslunni og bætt við:

„Að gefnu tilefni rifjum við upp mynd síðan í vor með einföldum skilaboðum út í samfélagið:

VIÐ ERUM HÉR FYRIR ÞIG
VERTU HEIMA FYRIR OKKUR.“

Myndirnar má sjá í færslunni hér fyrir neðan:

INNSÝN // COVID-19-VIÐBRAGÐIÐ Á GJÖRGÆSLUDEILD LANDSPÍTALA Í FOSSVOGI
Þriðja bylgjan í heimsfaraldri COVID-19 hér á…

Posted by Landspítali on Friday, October 9, 2020

Hér má síðan sjá upplýsingar um COVID-19 á Íslandi: