Dagsstimplar á matvörum segja oft ekki alla söguna. Fyrirtækjum ber lagaleg skylda til að hafa einhverja best fyrir dagsetningu á vörum en sum matvæli endast endalaust séu þau óopnuð og geymd rétt.

Hér eru níu matvæli sem skemmast aldrei.

Hunang

Hunang hefur svo gott sem endalaust geymsluþol. Liturinn gæti breyst og kristallar myndast en það er alveg jafn ætt og áður. Kristallarnir hverfa ef þú setur opna krukkuna í volgt vatn og hræri í hunanginu.

Hrísgrjón

Hrísgrjón eru alltaf í jafn góðu standi og daginn sem þú keyptir þau. Jafnvel þó þau safni ryki er hægt að skola það af og gæða sér á þeim. Eina undantekningin eru brún hrísgrjón en þau innihalda meiri olíu en önnur og hún getur súrnað. Best er þó að geyma hrísgrjónin alltaf í loftþéttum umbúðum.

Hvítt edik

Þessi undravökvi jafn nytsamlegur til eldamennsku og heimilisþrifa. Að auki er besta mál að kaupa edik í stórum stíl þar sem það endist um aldur og ævi.

Salt

Salt er alltaf salt og skemmist ekki þó þú geymir það árum saman.

Maíssterkja

Til að tryggja nær endalaust geymsluþol maíssterkju er mikilvægt að halda henni þurri í loftþéttum umbúðum á svölum stað.

Sykur

Sykur skemmist ekki en getur orðið grjótharður með tímanum ef hann er ekki geymdur í loftþéttum umbúðum sem verja hann fyrir raka.

Sterkt áfengi

Þú þarft ekki að sturta í þig heilli viskíflösku til að tryggja að innihaldið skemmist ekki. Ef þú geymir hana nógu lengi getur hún jafnvel gengið í erfðir. Svo vel geymist sterkt áfengi.

Þurrkaðar baunir

Hægt er að geyma þurrkaðar baunir svo gott sem endalaust. Þær tapa ekki næringargildi með árunum en eftir því sem þær eldast gæti þurft að sjóða þær lengur og stundum verða þær ekki eins mjúkar og við myndum vilja.

Hlynsíróp

Ef þú geymir það í frysti endist hlynsíróp að eilífu. Þú munt ekki sjá eftir því að eiga eitthvað af því í frystinum næst þegar þú bakar pönnukökur.