Framleiðslufyrirtækið Tattarrattat hefur gert samning við danska fyrirtækið LevelK um alþjóðlega dreifingu á heimildamyndinni, A Song Called Hate, heimildarmynd um Eurovision-gjörning hljómsveitarinnar Hatara.

Leikstjóri og framleiðandi er Anna Hildur Hildibrandsdóttir en hún fylgdi hópnum til Ísrael og Palestínu á meðan á Eurovision-keppninni stóð í fyrra ásamt Baldvini Vernharðssyni kvikmyndatökumanni. Myndin er framleidd af Tattarrattat í samstarfi við RÚV.

Frumsýna átti myndina á CPH:DOX heimildamyndahátíðinni í Kaupmannahöfn í mars síðastliðnum en ekki varð af því vegna lokunar landamæra vegna COVID-19. Ráðgert er að myndin verði frumsýnd í haust.

Ögrandi og erfitt

Hatari vakti verðskuldaða athygli með framlag Íslands til Eurovision í Tel Aviv í fyrra, Hatrið mun sigra. Mikill alþjóðlegur fjölmiðlaáhugi skapaðist í kringum yfirlýsingar Hatarahópsins, bæði í aðdraganda lokakvöldisins og á kvöldinu sjálfu þar sem táknrænn gjörningur þeirra náði til yfir 200 milljóna áhorfenda. A Song Called Hate fjallar um listina sem felst í því að taka afstöðu og spyr spurninga um hlutverk listarinnar í pólitísku samhengi.

„Þetta ferðalag var bæði ögrandi og erfitt. Maður fann vel fyrir spennunni og hættunum sem voru til staðar. En um leið var gefandi að sjá Hatarahópinn taka afstöðu til mannréttindamála með svona afgerandi hætti og fylgjast með öllu ferlinu sem stóð í raun yfir í sex mánuði. Það gaf mér von og vonin er það dýrmætasta sem maður á,“ segir leikstjórinn Anna Hildur, en þetta er í fyrsta sinn sem hún leikstýrir heimildamynd í fullri lengd.

Anna Hildur leikstýrir og framleiðir myndina.

Iain Forsyth og Jane Pollard sem unnu með Önnu Hildi að verkinu sem yfirframleiðendur eru meðal annars þekkt fyrir mynd sína 20.000 Days On Earth sem fjallar um Nick Cave. Þeim fannst viðfangsefnið ekki síst áhugavert vegna hugmynda um hvaða áhrif listin getur haft:

„Við erum alltaf áhugasöm um stærra samhengi sögunnar sem verið er að fást við. Við viljum afhjúpa goðsögnina um hvað þarf til að vera listamaður, hvað það þýðir að búa yfir skapandi hugsun. Listin getur ekki breytt heiminum, en hún getur breytt fólki og fólk getur breytt heiminum.“