Þessi Snickers-eplakaka er algjört æði, þó ég segi sjálf frá. Og þó þú kunnir ekkert að baka – og ég meina EKKERT – þá geturðu búið til þessa köku og heimilisfólkið á eftir að dýrka þig!

Þessi kláraðist á núll einni heima hjá mér og góða við hana er að það er alltaf hægt að hita hana upp daginn eftir og hún er alveg jafn góð – ef ekki betri.

Ég er vön því að bjóða upp á karamellusósu með eplaköku en í þessu tilfelli þarf það ekki út af öllu Snickers-inu sem er í þessari köku. Svo er líka æðislegt að finna mjög vægt hnetubragð sem kemur frá Snickers-inu. Geggjuð blanda og geggjuð Snickers-eplakaka!

Ég get ekki ítrekað það nógu mikið að þessi Snickers-eplakaka er ofureinföld!

Þannig að ekki hika, farið rakleiðis inn í eldhús núna og skellið í þessa!

Snickers-eplakaka

Hráefni

Mulningur

1/2 bolli hveiti
1/2 bolli haframjöl
1/2 bolli púðursykur
1/2 tsk lyftiduft
smá salt
75 g kalt smjör, skorið í teninga

Eplablanda

3-4 stór epli (afhýðuð og skorin í litla bita)
3 msk brætt smjör
2 msk hveiti
1 msk sítrónusafi
1 tsk vanilludropar
3 msk mjólk
1/4 bolli púðursykur
1/2 tsk kanill
smá salt
3 Snickers (söxuð)

Leiðbeiningar

Mulningur

Hitið ofninn í 180°C. Blandið öllum hráefnum í mulninginn saman þar til blandan er orðin að grófri mylsnu. Kælið í ísskáp á meðan þið búið til fyllinguna.

Eplablanda

Blandið hveiti og smjöri vel saman í skál. Hrærið því næst sítrónusafa og vanilludropum vel saman við. Bætið púðursykri, kanil og salti saman við og hellið þessari blöndu yfir eplin og hrærið svo hún hylji eplin. Hellið eplablöndunni í eldfast mót. Raðið Snickers-bitunum yfir blönduna. Dreifið mulningnum yfir. Bakið í 30 til 35 mínútur. Leyfið kökunni að kólna í að minnsta kosti 10 mínútur áður en þið berið hana fram – að sjálfsögðu með rjóma eða vanilluís.