Stundum finnur maður uppskriftir á internetinu sem eru svo dásamlegar að maður á ekki orð! Eins og uppskrift að þessari Crème Brûlée ostaköku sem ég fann á matarvefnum Delish. Pínu nostur en þess virði fyrir guðdómlega köku.

Crème Brûlée-ostakaka

Botn – Hráefni:

9 Graham-hafrakex, fínt mulin
6 msk. brætt smjör
¼ bolli sykur
smá salt

Aðferð:

Hitið ofninn í 160°C og smyrjið hringlaga form sem er sirka 18 til 20 sentímetra stórt. Klæðið botninn með álpappír og látið hann ná upp á hliðarnar. Blandið hafrakexi, smjöri, sykri og salti saman í skál. Þrýstið í botninn á forminu og látið blönduna ná upp á hliðarnar.

Fylling – Hráefni:

900 g mjúkur rjómaostur
1 bolli sykur
3 stór egg
2 stórar eggjarauður
2 tsk. vanilludropar
¼ bolli sýrður rjómi
2 msk. hveiti
¼ tsk. salt

Aðferð:

Þeytið rjómaost og sykur vel saman þar til blandan er kekkjalaus. Bætið eggjum og eggjarauðum saman við og því næst vanilludropum og sýrðum rjóma. Bætið hveiti og salti saman við og hrærið vel. Hellið blöndunni yfir botninn. Setjið formið í stóra ofnskúffu og hellið sjóðandi vatni í pönnuna þar til hún nær uppá hálft kökuformið. Bakið í eina og hálfa klukkustund, slökkvið á hitanum, opnið ofnhurðina og leyfið kökunni að kólna í ofninum í um klukkustund. Fjarlægið álpappírinn og kælið kökuna í ísskáp í að minnsta kosti 5 klukkustundir.

Toppur – Hráefni:

1/3 bolli sykur
hindber til að bera fram með

Aðferð:

Stráið sykrinum yfir ostakökuna og hitið með brennara þar til sykurinn hefur tekið karamellulit. Berið fram með hindberjum.