Það þurfa einfaldlega allir að eiga góða skúffukökuuppskrift og þessi svínvirkar í hvert einasta sinn! Þessi uppskrift passar í litla skúffu en ef þið viljið baka hana í stóra ofnskúffu þá mæli ég með að tvöfalda hana.

Hvernig væri að baka skúffuköku í dag?

Langbesta skúffukakan

Kaka – Hráefni:

2 bollar hveiti
2 bollar sykur
1/4 tsk sjávarsalt til að skreyta
230 g smjör
4 msk kakó
1 bolli sjóðandi heitt vatn
1/2 bolli súrmjólk
2 stór egg (þeytt)
1 tsk matarsódi
1 tsk vanilludropar

Krem – Hráefni:

150 g mjúkt smjör
300 g flórsykur
1/2 bolli karamellusósa
1 tsk vanilludropar
1/4 tsk sjávarsalt
1-2 msk nýmjólk
3-4 msk kakó
1-2 bollar Brak (eða annað skraut)

Leiðbeiningar

Byrjum á kökunni. Hitið ofninn í 180°C og smyrjið eina litla ofnskúffu. Blandið hveiti, sykri og salti vel saman í skál. Bræðið smjörið í potti og bætið kakói og sjóðandi heitu vatni saman við þegar smjörið er bráðnað. Blandið súrmjólk, eggjum, matarsóda og vanilludropum saman í lítilli skál. Blandið súrmjólkurblöndunni saman við hveitiblönduna og síðan vatnsblöndunni. Hrærið allt vel saman. Hellið blöndunni í skúffuna og bakið í 25-30 mínútur.

Síðan er það kremið. Þeytið smjörið í 2-3 mínútur og hrærið síðan flórsykrinum saman við. Blandið karamellusósu, kakó, vanilludropum og salti vel saman við. Ef kremið er of þykkt má bæta smá mjólk saman við. Smyrjið kreminu ofan á kólnaða kökuna og skreytið með Braki, eða einhverju öðru gúmmulaði.