Þessar karamellur eru svo fáránlega einfaldar og stór plús er að það þarf bara nokkur hráefni til að skella í þessar dásemdir.

Enn og aftur nota ég sæta dósamjólk sem mér finnst algjört möst í karamellugerð og enn og aftur mæli ég með að þið heimsækið asískar matvöruverslanir til að kaupa mjólkina góðu.

Popp spilar hér stóra rullu og þið megið alls ekki sleppa því en hneturnar mega alveg sitja hjá í þetta sinn ef þið viljið.

Poppkaramellur

Hráefni:

250 g súkkulaði (ég notaði 70%)
1/2d ós sæt mjólk (sweetened condensed milk)
1 msk smjör
2 bollar popp
1/2 bolli grófsaxaðar pekanhnetur
1/2 tsk vanilludropar

Aðferð:

Bræðið saman súkkulaði, mjólk og smjör yfir meðalhita þar til allt er vel blandað saman. Hrærið síðan poppi, hnetum og vanilludropum saman við. Setjið smjörpappír í kassalaga form, sirka 20 sentímetra langt, og hellið blöndunni ofan í. Leyfið blöndunni að jafna sig í ísskáp í sirka klukkustund og skerið síðan í bita.