Brioche-snúðar með vanillubúðingi og pekanhnetum
Þessir eru gjörsamlega geggjaðir!


Ég elska það aðeins of mikið að baka snúða. Ég elska ekki aðeins að baka þá heldur er það sérstakt áhugamál há mér að háma þá í mig líka.
Ég á uppskrift að bestu kanilsnúðum í heimi, sem ég baka mjög reglulega, en stundum þarf maður aðeins að ögra sér og búa til eitthvað nýtt.
Ég er sérstök áhugamanneskja um hvernig má nota Royal-búðing í bakstur og hef notað þann klassíska búðing í snúða áður, eins og þið sjáið hér að ofan í heimsins bestu kanilsnúðum. Ég hef einnig notað karamellubúðinginn frá Royal í fyllingu í snúða (sjá hér) en nú er komið að vanillubúðing.
Í stuttu máli þá kláruðust þessir snúðar strax! Ókei, ég kláraði bróðurpartinn af þeim… en samt!
Njótið fallegu snúðarnir mínir!
Brioche-snúðar með vanillubúðingi og pekanhnetum
Deig:
2 1/4 tsk þurrger
1 bolli nýmjólk (volg)
4 msk sykur
3 3/4 – 4 bollar hveiti
1 tsk sjávarsalt
2 egg (við stofuhita)
1 tsk vanilludropar
90 g mjúkt smjör
Búðingur:
1 pakki Royal-vanillubúðingur
250 ml mjólk
150 ml rjómi
Fylling:
3/4 bolli púðursykur
1/2 bolli pekanhnetur (saxaðar)
1 egg (hrært saman við 1 msk af vatni)
Deig:
Blandið geri, mjólk og 2 matskeiðum af sykri saman og leyfið þessu að standa í 10-15 mínútur eða þar til blandan freyðir. Blandið hveiti, salti og restinni af sykrinum saman í stórri skál. Bætið eggjum, vanilludropum og gerblöndunni saman við. Blandið í 2-3 mínútur á lágum styrk og síðan í 10 mínútur á háum styrk. Lækkið stykinn og bætið smjörinu saman við, smá bita í einu þar til allt er vel blandað saman – þetta tekur 3-4 mínútur. Blandið síðan í 5 mínútur til viðbótar. Setjið plastfilmu yfir skálina og leyfið deiginu að hefast í 1 til 1 og hálfan klukkutíma.
Búðingur:
Blandið öllu vel saman og geymið í ísskáp á meðan að deigið hefast.
Fylling og bakstur:
Hitið ofninn í 180°C og smyrjið meðalstórt eldfast mót. Fletjið deigið út. Dreifið úr búðingnum á deigið, en ég notaði ekki alveg allan búðinginn – það er matsatriði. Dreifið púðursykri og pekanhnetum yfir búðinginn og rúllið deiginu upp. Skerið í jafnstóra snúða og raðið í eldfasta mótið. Leyfið snúðunum að hvíla undir klút í 10-15 mínútur. Penslið síðan með eggjablöndunni og bakið í 35 til 45 mínútur. Leyfið snúðunum að kólna lítið eitt áður en hámið hefst.
You must be logged in to post a comment.