Þetta brauð kom mér ánægjulega á óvart og er mýksta brauð sem ég hef á ævi minni smakkað. Það er afskaplega létt í maga og geymist vel í nokkra daga. Það er reyndar svo bragðgott að það geymdist frekar illa á mínu heimili, þó að krakkarnir væru ekki alveg að gúddera þetta nýmeti. Ég gerði þau byrjendamistök að segja þeim að þetta væri heilsubrauð og þá var gamanið búið!

En ég mæli með þessu brauði ef þið viljið minnka hveitið og kolvetnin. Ég smurði hummus á mitt og borðaði þetta eins og sælgæti. Njótið!

Dúnmjúkt og sykurlaust möndlumjölsbrauð

Hráefni:

1 2/3 bolli möndlumjöl
4 egg
1/4 bolli nýmjólk (gott að skipta út fyrir möndlumjólk)
2 msk ólífuolía
2 tsk lyftiduft
1/2 tsk sjávarsalt
2-3 msk graskersfræ (má sleppa)

Aðferð:

Hitið ofninn í 175°C og smyrjið hefðbundið brauðform með olíu. Blandið öllum hráefnum vel saman í skál en deigið á að vera kekkjalaust og í þynnri kantinum. Hellið deiginu í formið og bakið í miðjum ofni í 40 mínútur. Leyfið brauðinu að kólna aðeins í forminu áður en þið takið það úr og skerið í sneiðar.