Ég elska taco og gæti borðað það á hverjum einasta degi. Ég hef prófað ýmislegt í taco efnum en þessi uppskrift sem ég fann á matarvefnum Delish er í sérstöku uppáhaldi. Matur sem gleður magann meira en orð fá lýst!

Rækju taco

Hráefni:

450 g risarækjur, hreinsaðar
1½ msk. cajun krydd
2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
1 msk. ólífuolía
salt og pipar
1 msk. smjör
2 mangó, söxuð
2 avókadó, skorin í teninga
safi úr 1 súraldin
½ rauðlaukur, saxaður
1 jalapeño, saxaður
1 msk. ferskt kóríander, saxað
8 litlar tortilla pönnukökur
2 bollar kál, saxað

Aðferð:

Blandið rækjum saman við cajun krydd, hvítlauk og ólífuolíu. Saltið og piprið. Bræðið smjör í pönnu yfir meðalhita. Bætið rækjunum út í og eldið þar til þær verða bleikar, eða í um 2 mínútur á hvorri hlið. Búið til mangó salatið með því að blanda saman mangó, avókadó, súraldinsafa, rauðlauk, jalapeño og kóríander. Saltið. Takið til pönnukökurnar. Setjið kál á þær, svo rækjur og loks mangósalatið og berið fram.