Þennan rétt rakst ég á á síðunni Daily Meal og finnst mér hann æðislegur, hvort sem er sem aðalréttur eða meðlæti. Uppskriftin er fyrir tíu skammta en hver skammtur inniheldur aðeins 178 hitaeiningar. Ekki skemmir fyrir hve góður rétturinn er!

Blómkáls- og brokkolíréttur

Hráefni:

½ bolli brauðrasp
¼ bolli + 2 msk. parmesan ostur, rifinn
2 msk. smjör, brætt
1½ tsk. ítalskt krydd
450 g brokkolí í bitum
450 g blómkál í bitum
2 msk. smjör
1 laukur, saxaður
2 msk. hveiti
1 tsk. hvítlaukskrydd
¼ tsk. svartur pipar
1¼ bolli mjólk
115 g rjómaostur, skorinn í bita

Aðferð:

Hitið ofninn í 175°C. Blandið brauðrasp, 2 matskeiðum af parmesan osti, 2 matskeiðum af bræddu smjöri og ½ teskeið af ítölsku kryddi saman í lítilli skál og setjið til hliðar. Bræðið 2 matskeiðar af smjöri í stórum potti yfir meðalhita. Setjið laukinn í pottinn og eldið í 5 mínútur. Blandið hveiti, restinni af ítalska kryddinu, hvítlaukskryddinu og piparnum saman við. Bætið mjólkinni saman við og látið malla þar til sósan þykknar. Bætið rjómaosti og restinni af parmesan ostinum saman við og hrærið þar til rjómaosturinn bráðnar. Bætið blómkáli og brokkolí saman við og hrærið vel. Hellið í eldfast mót og stráið brauðraspsblöndunni yfir. Bakið í 40 mínútur og berið strax fram.