Secret Solstice hátíðin hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu:

„Secret Solstice hátíðin í samstarfi við  Icelandic Glacial Water, Reykjavíkurborg, Ölgerðina, Jim Beam, Tuborg, Helix Vodka, Hljóð X, Go-Pro Íslandi, K. Karlsson heildverslun, Fréttanetið, Nova,  Dillon Whiskey Bar, Volume, Chuck Norris Grill og Unicef tilkynna um röð tónleika með mörgum af flottustu og mest spennandi listamönnum Íslands í dag.

Við sem stöndum að Secret Solstice hátíðinni ákváðum eftir að ljóst var að reglum um samkomur var létt af skemmtistöðum, að skipuleggja tónleikaröð í garðinum fyrir aftan Dillon á Laugavegi 30. Með því langar okkur bæði til þess að bæta einhverjum af þeim íslensku tónlistarmönnum sem áttu að spila á hátíðinni upp það tekjutap sem frestun hátíðarinnar veldur í sumar ásamt því að búa til vinnu fyrir það tæknifólk sem hefði annars unnið hjá okkur í sumar.

Við höfum unnið að skipulagningu þessa verkefnis síðustu vikur og munu fyrstu tónleikarnir fara fram helgina 4. og 5. júlí næstkomandi. Eftir það munu fara fram tónleikar alla laugardaga og sunnudaga ásamt einhverjum föstudögum fram yfir Menningarnótt. Lokatónleikarnir verða 23. ágúst, sem er lokadagur menninngardagshátíðarinnar sem kynnt var nýlega. Hvern dag munu koma fram að minnsta kosti 4 íslenskar hljómsveitir eða stakir tónlistarmenn. Samtals verða þetta 8 helgar, 17 tónleikar og að minnsta kosti 64 stakir listamenn/hljómsveitir. Við bætum hugsanlega við um verslunarmannahelgi og menningarnæturdagana.

Með frábærum stuðningi okkar samstarfsaðila getum við boðið upp á alla þessa tónleika frítt á meðan pláss er í garðinum og öruggt sé að við séum að hlýða Víði.

Þó að frítt verði inn á tónleikana mun bæði gestum á Laugavegi og þeim sem horfa í gegnum net eða sjónvarp bjóðast að styrkja Unicef samtökin.

Næstu daga munum við kynna nánar hverjir það eru sem koma fram og hvenær, eftirfarandi listamenn og hljómsveitir eru staðfest nú þegar:

Afro/Cuban Kvartett Einars Scheving (Ari Bragi, Eyþór Gunnar og Róbert Þórhallsson) , Ása, Ateria, Benni & Máni b2b, Bensol, Bjartmar Guðlaugsson, Beggi Smári, Blaffi x Örvar,Blaz Roca, Blóðmör, Captain Syrup, Carla, KrBear,Celebs, Cell 7, Daníel Hjálmtýsson ásamt hljómsveit, Diamond Thunder, Dimma, DJ Margeir,Dread Lightly,Elín Ey, Elli Grill, Eyvi, Fox Train Safari, Frid, Grúska Babúska, GG Blús, Högni Egils, Iris Arnis, Jói Pé og Króli, Krassasig, Kría, Krish, Krummi, Mæðraveldið, Magnús Sigmundsson, Mighty Bear, Omotrack, Orang Valante, Rívars x Karakter x Ægir, Rokky, Ruddagaddur, Rúnar Þór, Séra Bjössi, Sindri Eldon and the Ways, Sprite Zero Klan, SunCity, Svavar Knútur, TTT & SamWise, Une Misere, Valby bræður, Vicky, Vintage Caravan, Volcanova,  Warmland, We Made God, Zöe, Þórunn Antonía

Næstu daga og vikur mun svo verða tilkynnt um fleiri listamenn og hljómsveitir sem verða með.

Það er mikill áhugi hjá erlendum samstarfsaðilum Secret Solstice á íslenskri tónlist og nú þegar tími gefst vegna frestunar hátíðarinnar ákváðum við að kynna allar tegundir íslenskrar tónlistar fyrir þessum vinum okkar. Skemmst er að segja frá því að það er gríðarlegur áhugi fyrir því að horfa á lifandi íslenska tónlist sem flutt er frammi fyrir áhorfendum.

Auk þess að verða sendir út á samfélagsmiðlum innlendra og erlendra samstarfsaðila þá munu tónleikarnir verða sendir út í gegnum Dice.fm og United We Stream.

Eins og áður segir þá mun næstu daga verða tilkynnt um fleiri listamenn og hljómsveitir sem munu koma fram í sumar.“

Til þess að fylgjast með er best að „læka“ Facebook síðustu Fréttanetsins en þar munu allar nýjar upplýsingar berast jafnóðum.

Brynjar Snær