Ég kynntist nýju lostæti á dögunum sem heitir Smash. Við erum að tala um gamla góða Bugles-snakkið, húðað með súkkulaði. Hljómar skringilega, ég veit, en þetta er eitt allra besta nammi sem ég hef smakkað! Heilu pokarnir bara renna ofan í mig og ég fæ ekki nóg af þessu!

Þegar ég var á sirka poka 10 og orðin illa haldin af magaverk datt mér í hug að það væri geðveikt að búa til marengs úr þessum unaðsbitum. Þannig að ég staulaðist inn í eldhús, því maður er auðvitað aldrei það slappur að maður geti ekki bakað, og skellti í Smash-marengs.

Hugboðið mitt var rétt. Þessi blanda af Smash og marengs er ómótstæðileg! Þetta er nýi uppáhaldsmarensinn minn.

Súkkulaðimarengs með karamellusósu

Marengs:

5 eggjahvítur
1 1/4 bolli sykur
3 tsk lyftiduft
150 g Smash (saxað)
1/2 l rjómi (þeyttur)
1/4 bolli flórsykur

Skreyting:

10 rjómakaramellur
6-8 msk rjómi
50 g Smash (saxað)

Aðferð:

Byrjum á marengsinum. Hitið ofninn í 150°C. Takið til 2 smjörpappírsarkir og teiknið 3 jafnstóra hringi (ca 18-19 sentímetra) á pappírinn. Þeytið eggjahvíturnar í tandurhreinni skál þar til þær byrja að freyða. Bætið sykrinum við í einni bunu á meðan þið þeytið hvíturnar. Þeytið blönduna í 15-20 mínútur eða þangað til þið getið haldið skálinni á hvolfi og ekkert lekur niður. Blandið Smash og lyftidufti saman og blandið því saman við marengsinn með sleif eða sleikju. Deilið blöndunni á milli hringjanna þriggja. Bakið í 40 mínútur og leyfið kökunum að kólna í ofninum. Hafið samt smá rifu á honum. Þeytið svo hálfan líter af rjóma saman við flórsykurinn.

Svo er það skreytingin. Setjið rjóma og karamellur í skál og bræðið saman í örbylgjuofni. Hrærið í blöndunni á 30 sekúndna fresti. Smyrjið 1/2 af þeytta rjómanum á neðsta botninn og setjið annan botn ofan á. Smyrjið restinni af rjómanum ofan á miðjubotninn og setjið síðasta botninn ofan á. Hellið karamellusósuna yfir toppinn og skreytið með Smash.