Eitt kórónaveirusmit greindist síðasta sólarhringinn hér á landi. Staðfest smit á Íslandi eru orðin 1804 og hefur virkum smitum fjölgað um eitt síðan í gær, og eru nú þrjú samkvæmt vef Landlæknis og Almannavarna, covid.is. Tíu hafa látist af völdum veirunnar á Íslandi.

Á veirufræðideild Landspítalans voru tekin 141 sýni í gær, en 350 hjá Íslenskri erfðagreiningu.

Enginn liggur inni á sjúkrahúsi með COVID-19 þessa stundina en tæplega átján hundruð manns hafa náð bata. Fólki í sóttkví fjölgar lítillega á milli daga og eru nú 897. Alls hafa nú 20.228 lokið sóttkví og 58.786 sýni verið tekin.

Næsti upplýsingafundur Almannavarna verður á mánudaginn klukkan 14. Þá taka frekari tilslakanir á samkomubanni gildi. Meðal annars opna líkamsræktarstöðvar dyr sínar og fjöldi fólks sem má vera í sama rými verður aukinn í 200.

Hér fyrir neðan má sjá tölfræði um COVID-19 á Íslandi: