Þetta eru piparsveinarnir sem keppast um hylli piparjónkunnar
Ruðningskappar, spinningkennari, kokkur og fíknisérfræðingur.


Sextánda sería af raunveruleikaþáttunum The Bachelorette hefur göngu sína þriðjudaginn 13. október á sjónvarpsstöðinni ABC.
Sjá einnig:
Í þáttunum mun 31 piparsveinn keppast um hylli piparjónkunnar Clare Crawley, en nú er búið að ljóstra um hverjir þessir piparsveinar eru. Á listanum kennir ýmissa grasa, en mennina má alla sjá hér fyrir neðan.
AJ, 28 ára
Sölumaður hugbúnaðar frá Playa del Rey í Kaliforníu.
Ben, 29 ára
Fyrrverandi herlögreglumaður frá Venice í Kaliforníu.
Bennett, 36 ára
Fjárhagsráðgjafi frá New York.
Blake Monar, 31 ára
Sérfræðingur í herrasnyrtingu frá Phoenix.
Blake Moynes, 29 ára
Forstöðumaður dýraverndunarsvæðis frá Hamilton í Ontaríó í Kanada.
Brandon, 28 ára
Fasteignasali frá Cleveland.
Brendan, 30 ára
Þakviðgerðarmaður frá Milford í Massachusetts.
Chasen, 31 ára
Verkefnastjóri í upplýsingatækni frá San Diego.
Chris, 27 ára
Sölumaður landslagshönnunar frá Salt Lake City.
Dale, 31 ára
Fyrrverandi ruðningskappi frá Brandon í Suður-Dakóta.
Demar, 26 ára
Spinningkennari frá Scottsdale í Arizona.
Eazy, 29 ára
Markaðsfulltrúi innan íþróttahreyfingarinnar frá Newport Beach í Kaliforníu.
Ed, 36 ára
Sölumaður innan heilbrigðisgeirans frá Miami.
Garin, 34 ára
Prófessor í fjölmiðlafræði frá Norður-Hollywood í Kaliforníu.
Ivan, 28, ára
Loftsiglingafræðingur frá Dallas.
Jason, 31 ára
Fyrrverandi ruðningskappi frá Arlington í Virginíu.
Jay, 30 ára
Einkaþjálfari frá Fort Lauderdal á Flórída.
Jeremy, 40 ára
Bankamaður frá Washington D.C.
Joe, 36 ára
Svæfingarlæknir frá New York.
Jordan C., 26 ára
Verkefnastjóri í hugbúnaðargeiranum frá New York.
Jordan M., 30 ára
Netöryggisfræðingur frá Santa Monica í Kaliforníu.
Kenny, 39 ára
Umboðsmaður strákasveita frá Chicago.
Mike, 38 ára
Ráðgjafi í stafrænni miðlun frá Calgary í Alberta í Kanada.
Page, 37 ára
Kokkur frá Austin í Texas.
Riley, 30 ára
Lögfræðingur frá Long Island City í New York.
Robby, 31 ára
Tryggingasölumaður frá Tampa á Flórída.
Tyler C., 27 ára
Lögmaður frá Morgantown í Vestur-Virginíu.
Tyler S., 36 ára
Tónlistarmógúll frá Georgetown í Texas.
Yosef, 30 ára
Sölumaður læknabúnaðar frá Daphne í Alabama.
Zac C., 36 ára
Fíknisérfræðingur frá Haddonfield í New Jersey.
Zach J., 37 ára
Eigandi þrifþjónustu frá St. George í Utah.
You must be logged in to post a comment.